Learn more

Gulleggid 2012

 

Velkomin á skráningarsíðu Gulleggsins 2012. 

Gulleggið frumkvöðlakeppni Innovit er vettvangur fyrir einstaklinga og teymi til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera úr þeim raunverulegar og markvissar viðskiptaáætlanir sem miða að stofnun fyrirtækja. 

 

Keppnin er þrískipt. Í fyrsta áfanga hennar er stutt lýsing á viðskiptahugmynd send inn. Næst er fullbúinni viðskiptaáætlun skilað og loks eiga efstu keppendurnir möguleika á að kynna hugmynd sína fyrir dómnefnd og fjárfestum. Á meðan keppninni stendur eiga þátttakendur kost á að sækja námskeið og vinnusmiðjur þar sem þeir fá rýni og endurgjöf á hugmyndir sínar ásamt þjálfun í gerð viðskiptaáætlana og uppbyggingu viðskiptahugmynda. Sigurvegari keppninnar hlýtur verðlaunabikarinn Gulleggið 2012, 1.000.000 krónur í peningum og ráðgjöf frá Innovit. Þá verða ýmis aukaverðlaun veitt frá bakhjörlum og styrktaraðilum keppninnar en alls nema heildarverðlaun Gulleggsins 5.000.000 króna.

 

Allar frekari upplýsingar um Gulleggið má finna á innovit.is. Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband á netfangið gulleggid@innovit.is.

Sponsored by
Samstarfsaðilar
Styrktaraðilar
KPMG
Nova
Advel
Nói Síríus
Marel
Landsbankinn